Ferill 967. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.

Þingskjal 1693  —  967. mál.
Fyrirsögn.




Svar


háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og Birni Leví Gunnarssyni um skrifleg svör ráðherra við fyrirspurnum frá alþingismönnum.


     1.      Hvert er ferlið í ráðuneytinu þegar fyrirspurn skv. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis berst frá alþingismanni sem óskar skriflegs svars? Hvernig er það skráð í skjalavistunarkerfi ráðuneytisins?
    Fyrirspurnir frá Alþingi berast á netfang ráðuneytisins hvin@hvin.is. Við skráningu í Örk, skjalastjórnunarkerfi Stjórnarráðsins, stofnar skjalastjóri til nýs máls um erindið. Þá skráir skjalastjóri og bókar ábyrgðarmann (starfsmann) á málið í samræmi við tengiliðalista fyrir málefni og stofnanir. Skrifstofustjóri á skrifstofu framkvæmda og stjórnsýslu úthlutar málinu til sérfræðings sem tekur við vinnslu þess. Sérfræðingur metur þá hvort afla þurfi upplýsinga í svarið utan ráðuneytisins og leitar ef svo ber undir umsagnar/upplýsinga frá aðila máls eða hlutaðeigandi aðila sem býr yfir upplýsingum um mál. Það er gert með því að senda erindi til undirstofnunar eða annars aðila með ósk um aðstoð við svar til Alþingis. Drög að svari við erindi eru send skrifstofustjóra til rýni og afgreiðsla erindis borin undir ráðuneytisstjóra, ráðherra og aðstoðarmenn hans ef við á. Að lokum er mál afgreitt frá ráðuneytinu með þeim hætti að ritari ráðherra sendir svör til Alþingis ( skraning@althingi.is).

     2.      Hversu langur tími leið að jafnaði undanfarin þrjú ár frá því að fyrirspurn var útbýtt þar til ráðuneytið sendi forseta Alþingis skriflegt svar? Svar óskast sundurliðað eftir löggjafarþingum og fyrirspyrjendum.
    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti (HVIN) tók til starfa 1. febrúar 2022, sbr. forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022. Samkvæmt upplýsingum úr skjalastjórnunarkerfi HVIN hafði alls 81 fyrirspurn borist þar sem óskað er skriflegs svars skv. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis á tímabilinu 1. febrúar 2022 til 19. apríl 2024. Í eftirfarandi töflu má sjá umbeðna sundurliðun.

Þingskjal Lgþ. Málsheiti Fyrirspyrjandi Skráð Sent Alþingi
1542 154 Ávinningur sjálfvirknivæðingar og gervigreindar Indriði Ingi Stefánsson 19.4.2024
1530 154 Rafræn skilríki og rafræn SIM-kort Indriði Ingi Stefánsson 18.4.2024
1430 154 Skrifleg svör ráðherra við fyrirspurnum frá alþingismönnum Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir 11.4.2024
1284 154 Nefndir á vegum ráðuneytisins og kostnaður vegna þeirra Berglind Ósk Guðmundsdóttir 19.3.2024
1240 154 Hatursorðræða og kynþáttahatur Brynja Dan Gunnarsdóttir 13.3.2024
1219 154 Styrkir til félagasamtaka Berglind Ósk Guðmundsdóttir 12.3.2024
1158 154 Námsgögn Ágúst Bjarni Garðarsson 6.3.2024
1117 154 Kostnaður við auglýsingagerð, kynningarmál, viðburði og ráðstefnur Berglind Ósk Guðmundsdóttir 23.2.2024
1099 154 Boð um fjárframlög til einkarekinna háskóla Ingibjörg Isaksen 22.2.2024
998 154 Stafrænar smiðjur Björn Leví Gunnarsson 6.2.2024 15.3.2024
843 154 Uppbygging aðstöðu til jarðræktarrannsókna á Hvanneyri Bjarni Jónsson 18.12.2023 2.4.2024
591 154 Ívilnanir við endurgreiðslu námslána heilbrigðisstarfsfólks Ragna Sigurðardóttir 22.11.2023 2.2.2024
549 154 Myndefni gervigreindar Halldór Auðar Svansson 13.11.2023 15.12.2023
505 154 Ljósleiðarasamband Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir 7.11.2023 27.2.2024
465 154 Alþjóðlegar skuldbindingar Björn Leví Gunnarsson 26.10.2023 11.12.2023
430 154 Verkefni sem hljóta nýsköpunarstyrk Elva Dögg Sigurðardóttir 26.10.2023 15.12.2023
407 154 Samfélagsleg nýsköpun Elva Dögg Sigurðardóttir 25.10.2023 29.2.2024
406 154 Eftirlit með netöryggi Gísli Rafn Ólafsson 25.10.2023 29.2.2024
346 154 Brottfall úr háskólum og aðgerðir vegna kórónuveirufaraldurs Gísli Rafn Ólafsson 21.9.2023 2.4.2024
346 154 Nýskráning léns Indriði Ingi Stefánsson 12.10.2023 15.12.2023
343 154 Inntökupróf í læknisfræði Indriði Ingi Stefánsson 12.10.2023 12.12.2023
337 154 Eldri iðngreinar Indriði Ingi Stefánsson 11.10.2023 18.12.2023
278 154 Ferðakostnaður Björn Leví Gunnarsson 27.9.2023
248 154 Fjárveitingar til háskóla Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir 27.9.2023 9.11.2023
246 154 Ábati af nýsköpunarstarfsemi Aðalsteinn Haukur Sverrisson 26.9.2023 29.2.2024
224 154 Úthlutanir úr tækniþróunarsjóði Líneik Anna Sævarsdóttir 22.9.2023 1.11.2023
223 154 Undanþága frá staðnámi Líneik Anna Sævarsdóttir 22.9.2023 31.10.2023
205 154 Námslán og veikindi Gísli Rafn Ólafsson 21.9.2023 8.12.2023
202 154 Áhrif verðbólgu á námslán Gísli Rafn Ólafsson 21.9.2023 8.12.2023
199 154 Störf við stóriðju og sjókvíaeldi Gísli Rafn Ólafsson 27.9.2023 31.10.2023
2110 153 Styrkir og samstarfssamningar Bergþór Ólason 9.6.2023 6.9.2023
2093 153 Ljósleiðarasamband Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir 8.6.2023 Ekki svarað
2091 153 Samband rannsóknarstofnana og ráðuneyta Andrés Ingi Jónsson 8.6.2023 21.7.2023
2031 153 Heimildir stjórnenda Háskóla Íslands og Endurmenntunar Háskóla Íslands Sigurjón Þórðarson 8.6.2023 21.7.2023
1924 153 Menntasjóður námsmanna Steinunn Þóra Árnadóttir 1.6.2023 21.7.2023
1845 153 Viðurkenning á háskólagráðum erlendra einstaklinga Bryndís Haraldsdóttir 24.5.2023 21.7.2023
1817 153 Endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna Ásthildur Lóa Þórsdóttir 24.5.2023 26.6.2023
1815 153 Kynjahlutfall í háskólanámi Bryndís Haraldsdóttir 17.5.2023 4.9.2023
1803 153 Endurmat útgjalda Bryndís Haraldsdóttir 16.5.2023 4.9.2023
1791 153 Netöryggi Indriði Ingi Stefánsson 17.5.2023 5.6.2023
1781 153 Útgefin sveinsbréf Indriði Ingi Stefánsson 16.5.2023 5.6.2023
1669 153 Netöryggi Indriði Ingi Stefánsson 3.5.2023 5.6.2023
1633 153 Fjarskipti í Kjósarhreppi Gísli Rafn Ólafsson 26.4.2023 26.6.2023
1626 153 Ráð, nefndir, stjórnir, starfshópar og stýrihópar Bryndís Haraldsdóttir 26.4.2023 1.6.2023
1576 153 Námslán Björn Leví Gunnarsson 19.4.2023 15.5.2023
1573 153 Kínversk rannsóknarmiðstöð Andrés Ingi Jónsson 19.4.2023 5.6.2023
1511 153 Fræðastörf við Háskóla Íslands Eyjólfur Ármannsson 31.3.2023 8.5.2023
1484 153 Aðgerðir Háskóla Íslands gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi Eyjólfur Ármannsson 31.3.2023 8.5.2023
1460 153 Sjóðir á vegum ráðuneytisins og stofnana þess Hildur Sverrisdóttir 30.3.2023 15.5.2023
1303 153 Auglýsingar opinberra háskóla Anna Kolbrún Árnadóttir 14.3.2023 19.5.2023
1261 153 Vaxtaákvarðanir Menntasjóðs námsmanna Björn Leví Gunnarsson 8.3.2023 31.3.2023
1184 153 Staða umsóknar Íslands um aðild að Geimvísindastofnun Evrópu (ESA) Magnús Árni Skjöld Magnússon 24.2.2023 31.3.2023
1158 153 Rafræn skilríki fyrir Íslendinga sem búa erlendis Ásthildur Lóa Þórsdóttir 21.2.2023 8.3.2023
1153 153 Ráðning starfsfólks með skerta starfsorku Ásmundur Friðriksson 22.2.2023 31.3.2023
1104 153 Auðkenning umsækjenda af hálfu ISNIC Indriði Ingi Stefánsson 13.2.2023 24.2.2023
1096 153 Neyðarástand fjarskipta Indriði Ingi Stefánsson 13.2.2023 24.2.2023
1091 153 Kostnaður vegna fjar- og staðnáms á háskólastigi Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir 8.2.2023 15.3.2023
1053 153 Námslánataka eftir búsetu Logi Einarsson 2.2.2023 7.3.2023
1028 153 Byggingarrannsóknir og rannsóknir tengdar rakavandamálum Lilja Rafney Magnúsdóttir 2.2.2023 15.3.2023
999 153 Leikskólakennaranám Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 26.1.2023 16.3.2023
980 153 Viðbrögð við vanvirðandi framkomu af hálfu ráðherra eða ráðuneytisstjóra og sálfræðiþjónusta fyrir starfsmenn ráðuneyta Helga Vala Helgadóttir 26.1.2023 8.3.2023
740 153 Skipulag og stofnanir ráðuneytisins Diljá Mist Einarsdóttir 12.12.2022 16.3.2023
631 153 Fjölgun starfsfólks og embættismanna Helga Vala Helgadóttir 30.11.2022 24.1.2023
538 153 Farsímasamband Högni Elfar Gylfason 17.11.2022 6.12.2022
526 153 Áskrift að dagblöðum, tímaritum og öðrum miðlum Björn Leví Gunnarsson 22.11.2022 19.5.2023
460 153 Staða námslána hjá Menntasjóði námsmanna Steinunn Þóra Árnadóttir 15.11.2022 13.2.2023
453 153 Uppbygging fjarskipta í dreifbýli Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir 9.11.2022 23.11.2022
241 153 Ferðakostnaður og dagpeningar ráðherra Björn Leví Gunnarsson 30.9.2022 21.10.2022
157 153 Rafræn skilríki í Evrópu Hanna Katrín Friðriksson 20.10.2022 15.11.2022
15 153 Ívilnanir hjá Menntasjóði námsmanna Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir 8.6.2023 21.7.2023
873 152 Staða kvenna í nýsköpun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir 7.4.2022 15.6.2022
851 152 Landshlutasamtök og umhverfismál Hilda Jana Gísladóttir 7.4.2022 12.5.2022
789 152 Skipanir í stjórnir, starfshópa, nefndir, ráð o.þ.h. Hilda Jana Gísladóttir 4.4.2022 12.5.2022
762 152 Úrskurðir málskotsnefndar Menntasjóðs námsmanna Helga Þórðardóttir 11.4.2022 12.5.2022
757 152 Rafræn skilríki Björn Leví Gunnarsson 16.6.2022 27.6.2022
746 152 Styrkumsóknir hjá Nýsköpunarsjóði Evrópu og nýsköpunarlausnir í loftslagsmálum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir 8.4.2022 15.6.2022
722 152 Tímabundnar ívilnanir við endurgreiðslu námslána Halla Signý Kristjánsdóttir 11.4.2022 12.5.2022
498 152 Farsímasamband í dreifbýli Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir 11.2.2022 3.3.2022
482 152 Samskipti við hagsmunaverði og skráning þeirra Ásthildur Lóa Þórsdóttir 11.2.2022 21.2.2022
317 152 Geimvísindastofnun Evrópu Björn Leví Gunnarsson 18.1.2022 21.2.2022
308 152 Fjarnám í Háskóla Íslands Björn Leví Gunnarsson 18.1.2022 7.2.2022

     3.      Hvaða aðilar í ráðuneytinu sjá um vinnslu skriflegra svara, frágang þeirra, yfirlestur og sendingu til forseta Alþingis? Hversu langan tíma tók hvert þessara skrefa að jafnaði undanfarin þrjú ár? Svar óskast sundurliðað eftir löggjafarþingum og fyrirspyrjendum.
    Hér vísast til svars við 1. tölul. fyrirspurnarinnar. Upplýsingar um vinnslutíma sem varðar einstaka þætti í undirbúningi svars við fyrirspurn frá Alþingi, þegar óskað hefur verið eftir skriflegu svari, eru ekki tiltækar í skjalasafni ráðuneytisins. Sumar fyrirspurnir kunna að taka lengri tíma í vinnslu en þá fimmtán daga sem lögin segja til um. Í þeim tilvikum eru gögn og upplýsingar ekki fyrirliggjandi og útbúa þarf gögn hjá stofnunum og samstarfsaðilum ráðuneytisins. Þá er leitast við að gera forseta Alþingis grein fyrir drætti sem kann að verða á svari, sbr. 6. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis.